"F**k you" frá Sjávarútvegsnefnd


þetta er örugglega undarlegasta meirihlutaálit sem sést hefur.
Þar kemur fram að umsagnaraðilar hafi talið málið alvarlega vanreifað og stórir gallar augljósir sem gætu gert meiri skaða en gagn og ráðlegga eindregið að veita meiri tíma í að laga verstu gallana. Eftir slíkar umsagnir kemst meirihluti nefdarinnar að því eins og stendur í álitinu:

„Í ljósi framangreinds hafnar meiri hlutinn því að undirbúningur frumvarpsins hafi verið ónógur eða lélegur".

Þetta heitir á venjulegri íslensku, við ætlum að berja þetta í gegn alveg sama hvað hagsmunaðilum og öðrum finnst og alveg sama þó að skaði undirstöður þess eina sem er að skila einhverjum krónum inn í þjóðarbúið.

Og enn skýrar: þetta er að gefa FINGURINN frama í þjóðina.


mbl.is Gagnrýni hefur gengið of langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei þetta er að gefa fingurinn framan í L.Í.Ú.  Ekki þjóðina 80% þjóðarinnar vill breytingar og að svokallaðir hagsmunaaðilar skili því sem þeir hafa haft gefins allof lengi.  Fiskveiðar leggjast ekki af þó þessir greifar þurfi að minnka við sig og hætta að leigja út kvóta sem þeir veiða ekki sjálfir.  Og af hverju ætli útgerðin skuldi nú þegar yfir 500 milljarða?  Af því að reksturinn sé svo hagkvæmur, eða er það af því að greifarnir hafa tekið þessa peninga út úr kerfinu og sett þá í eitthvað allt annað. Ekki hafa þeir farið í að endurnýja fiskiskipaflotann, skip tól eða tæki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2011 kl. 12:37

2 Smámynd: Haukur Brynjólfsson

Óhætt er að taka undir það að gagnrýni á frumvarpið hefur gengið of langt  enda er hún að miklu leiti fremur grimm hagsmunagæsla en málefnalegt innlegg í umræðu. Það er líka spurning hversu marktækir gagnrýnendur geta talist. Tökum sem dæmi Helga Áss Grétarsson sem farið hefur mikinn og haft stór orð í vörn sinni fyrir óbreyttu kvótakerfi. Þessi ungi lögfræðingur er tiltlaður sem sérfræðingur á þessu sviði. Hvernig verða menn  sérfræðingar í fiskveiðistjórnun? Gerist það einfaldlega með því að taka lögfræðipróf frá HÍ ? Hvar er doktorsritgerð Helga Áss? Staðreyndin er að Helgi þessi er keypt málpípa LÍÚ. Eðlilegt er að sem slíkur kappkosti hann að vinna fyrir kaupinu sínu, en orð hans verða að skoðast í því ljósi og vega þá ekki þungt. Hitt er mun alvarlegra að Háskóli Íslands skuli vera notaður til að til þess að gefa slíkum ,,sérfræðingi” vægi.

Haukur Brynjólfsson

Haukur Brynjólfsson, 9.6.2011 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sveinn Egill Úlfarsson

Höfundur

Sveinn Egill Úlfarsson
Sveinn Egill Úlfarsson
Tek undir með Friðrik mikla að mér þykir alltaf vænna um hundinn minn eftir því sem ég kynnist mannana verkum betur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband